Taktu þér smá frí frá jólaösinni og njóttu notalegrar stundar á The Hill Hotel á Flúðum
Það er fátt betra en að hægja aðeins á í desember, njóta góðs matar og eiga notalega stund saman. Á The Hill Hotel bjóðum við þér að skipta jólaösinni út fyrir afslöppun, ljúffengan þriggja rétta jólakvöldverð og góða gistingu í hlýlegu umhverfi.
Eftir góðan kvöldverð er tilvalið að skella sér í heitu pottana okkar, njóta ferska sveitaloftsins og slaka á undir stjörnubjörtum himni. Svo bíður þín notalegt herbergi þar sem þú getur sofið út og notið þess að vera í fríi.
Jólapakki fyrir tvo – 39.990 kr.
Innifalið í tilboðinu er:
- Gisting fyrir tvo í eina nótt
- Þriggja rétta jólakvöldverður fyrir tvo
- Aðgangur að heitu pottum hótelsins
Skoðaðu jólaseðilinn okkar hér
Gefðu þér tíma til að njóta
Hvort sem þig langar í rómantíska stund fyrir tvo eða einfaldlega smá frí frá amstri hversdagsins er The Hill fullkominn staður til að njóta aðventunnar.
Bókanir og nánari upplýsingar
Sendu okkur tölvupóst á info@thehillhotel.is og við aðstoðum þig við að skipuleggja notalega jóladvöl.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á The Hill!
